Nördarnir
Enginn hreinn sveinn.... og einn giftur...
Nördarnir í action
Vinir Nördanna
Óvinur Nördanna
Nördabörn
Nördamyndir
Gestabok
Eldra rugl


sunnudagur, apríl 13, 2003  

Eldur kviknaði í Hilmari

Eldur kviknaði í hári Hilmars hjá LH-tækni laust eftir hádegið á föstudag. Vinnufélagar hans komu honum til hjálpar við slökkvistarfið þar til lögregla og slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar. Starfsemi tafðist um stund hjá LH-tækni vegna óhappsins. Hilmar var að forrita er óhappið átti sér stað. Hilmar slasaðist ekki við atvikið, enda hefur húð hans aðlagast hita frá því hann skvetti logandi Sambuca í andlitið á sér um árið.

posted by Doddi | 03:28
 

Pæling dagsins

Þverstæða Zenos:
Hlaupari ætlar að hlaupa 100 metra. Til að komast á leiðarenda þarf hann að fara yfir miðjuna (í 50 m). Til að komast að miðjunni þarf hann að fara yfir punktinn mitt á milli miðjunnar og byrjunarinnar (í 25 m). Til að komast að þeim punkti þarf hann að fara yfir punktinn sem er mitt á milli 0 og 25 (12,5 m). Til að komast að þeim punkti þarf hann að fara yfir punktinn sem er þar mitt á milli (6,25 m). Þannig má halda endalaust áfram að skipta lengdunum niður í helminga og sífellt má finna fleiri og fleiri miðjur til að fara yfir. Hlauparinn kemst því ekki einu sinni af stað því miðjurnar eru endalausar. Með öðrum orðum, hreyfing er ekki til. En við vitum samt að það er hægt að hlaupa 100 metra mjög auðveldlega. Hvers vegna?

posted by Doddi | 03:16


föstudagur, apríl 11, 2003  

Pæling dagsins

Ætli það séu einhver Eurovision-partý hér í USA?

posted by Hrafnkell | 15:35


fimmtudagur, apríl 10, 2003  

Jæja hvað segiði nördar..

Hvað á að gera um helgina, ég er að fara í Eurovision upphitunar partý í kvöld þar sem að heiðursgesturinn er enginn annar en Eyjólfur Kristjánsson. Ætli kvennmannsnafnið Nína muni ekki hljóma í því partýi oftar en einu sinni. Er eitthvað að gerast hjá ykkur?

posted by Hilmar | 16:23
 

A couple were on their honeymoon, lying in bed, about ready to
consummate their marriage, when the new bride says to the husband, "I
have a confession to make, I'm not a virgin."

The husband replies, "That's no big thing in this day and age."
The wife continues, "Yeah, I've been with one guy."
"Oh yeah? Who was the guy?"
"Tiger Woods."
"Tiger Woods, the golfer?"
"Yeah."
"Well, he's rich, famous and handsome.
I can see why you went to bed with him."
The husband and wife then make passionate love.
When they get done, the husband gets up and walks to the telephone.
"What are you doing?" asks the wife.
The husband says, "I'm hungry, I was going to call room service and get
something to eat."
"Tiger wouldn't do that."
"Oh yeah? What would Tiger do?"
"He'd come back to bed and do it a second time."
The husband puts down the phone and goes back to bed to make love a
second
time.
When they finish, he gets up and goes over to the phone.
"Now what are you doing?" she asks.
The husband says, "I'm still hungry so I was going to get room service to
get something to eat."
"Tiger wouldn't do that."
"Oh yeah? What would Tiger do?"
"He'd come back to bed and do it again."
The guy slams down the phone, goes back to bed, and makes love one more
time.
When they finish he's tired and beat. He drags himself over to the phone
and
starts to dial.
The wife asks, "Are you calling room service?"
"No! I'm calling Tiger Woods, to find out what par this f****ing hole
is!"

posted by Hrafnkell | 07:48


miðvikudagur, apríl 09, 2003  

Pæling dagsins:

Af hverju er jógúrt ekki kallað skyrja eins og Kristinn R. Ólafsson, Madrid, hefur margoft stungið upp á? Mér finnst það góð hugmynd hjá honum. Framvegis mun ég kalla jógúrt skyrju.

posted by Doddi | 18:46
 

Pæling:

2 + 2 = 3

Hvernig má þetta vera?

posted by Hilmar | 09:44


þriðjudagur, apríl 08, 2003  

Pæling dagsins:

Það var smá villa í lokin og ég er búinn að laga hana. Þetta var klaufavilla og því ekki skýringin á þessari stærðfræðigátu.

a = b

a^2 = ab

a^2 - b^2 = ab - b^2

Þátta:
(a + b)(a - b) = b(a - b)

(a - b) styttist þá burt:
a + b = b

Og þar sem a = b þá er:
2a = b

Hvernig getur þetta staðist? Vitið þið hvað fór úrskeiðis? Komið með komment.

posted by Doddi | 14:30


mánudagur, apríl 07, 2003  

Ég ætla að koma með pælingu einu sinni á dag í smá tíma, misdjúpar pælingar en engar þó ómerkilegar.

Pæling dagsins:

Af hverju er Tryggvi hættur að borða Lindubuff? Ég man að þegar við vorum í unglingavinnunni þá fékk hann sér Lindubuff á hverjum einasta degi í sjoppunni sem var í Nóatúni einu sinni. Hann ætti að íhuga að taka aftur upp þennan sið í stað þess að þamba kaffi alla daga, enda buffið meinhollt.

posted by Doddi | 17:01