fimmtudagur, desember 29, 2005
:(
posted by Doddi |
16:26Filter á Dodda
Vegna fjölda áskorana og pistilsins hérna fyrir neðan hef ég sett upp filter á Dodda þannig að hér eftir getur hann aðeins skrifað pistla sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Ekki lengri en 100 orð 2. Fjalla um málefni sem einhver hefur í rauninni áhuga á (annar en hann sjálfur og pabbi hans) 3. Hafa ekki birst í tímaritinu Lifandi vísindi og á vísindavefnum 4. Innihalda ekki orð sem hinn almenni lesandi þarf að fletta upp í "My big book of answers" 5. Fjalla ekki um veður né veðráttu á einhvern hátt
með kveðju Kerfisstjórinn
posted by Hilmar |
14:30Tíðarfar ársins 2005
Árið 2005 var hagstætt, en þótti fremur umhleypingasamt og tíðarfar var talið heldur lakara en næstu þrjú árin á undan. Hiti var þó vel yfir meðallagi, hlýjast að tiltölu um landið vestanvert, en einna kaldast að tiltölu suðaustanlands, þar sem hiti var 0,3 til 0,5 stig yfir meðallaginu 1961-1990. Í öðrum landshlutum var hiti víðast hvar 0,6 til 0,8 stig yfir meðallagi.
Úrkoma var undir meðallagi um sunnan- og vestanvert landið, árið hið þurrasta í Reykjavík síðan 1998 en þá var úrkoma álíka mikil og nú. Talsvert þurrara var 1995. Norðanlands var úrkoma meiri að tiltölu, 15% umfram meðallag á Akureyri. Mjög sólríkt var suðvestanlands, sólskinsstundir í Reykjavík mældust tæplega 1550 og er það um 280 stundum umfram meðallag. Sólskinsstundafjöldi var vel yfir meðallagi í Reykjavík í öllum mánuðum frá og með apríl til og með október. Sólskinsstundir hafa aðeins einu sinni mælst fleiri á ári í Reykjavík, 1630 árið 1924, árin 1927 og 1966 mældust sólskinsstundir þó litlu færri en nú. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 50 umfram meðallag.
Hafís gerði vart við sig síðla vetrar, í fyrsta sinn um nokkurra ára skeið, eftir óvenju þráláta vestanátt síðari hluta janúar og allan febrúar. Ísinn var mestur við landið í mars. Yfirlit um einstaka mánuði
Mjög umhleypingasamt var í janúar, illviðri nokkuð tíð og framan af mánuðinum var snjór meiri víðast hvar á landinu en verið hafði um nokkurra ára skeið. Allmikla snjóflóðahrinu gerði á Vestfjörðum snemma í mánuðinum. Síðasta vika mánaðarins var hins vegar mjög hlý og leysti þá snjó bæði af láglendi og langt upp eftir fjöllum. Í febrúar var hlýtt lengst af og óvenju snjólétt var á landinu, sérstaklega þó norðanlands. Úrkoma var allmikil um suðvestan- og vestanvert landið, en þurrviðrasamt var í öðrum landshlutum, þurrast þó á Suðausturlandi. Marsmánuður var mjög hlýr á landinu, þriðji mjög hlýi marsmánuðurinn í röð. Mjög hlýtt var um páskana. Óvenju snjólétt var á landinu í mars eins og í febrúar.
Mikill hafís var úti fyrir norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi öllu meiri hluta marsmánaðar eftir langvarandi vestanátt í Grænlandssundi og norðan við land. Um miðjan mánuð voru ísdreifar á siglingaleiðum úti fyrir öllu Norðurlandi, við Strandir, á leiðinni fyrir Horn og allt suður fyrir Langanes. Fregnir bárust af jökum alveg til Norðfjarðar. Eftir miðjan mánuð greiddist úr ísnum, en ísdreifar héldust á Húnaflóa.
Tíðarfar í apríl var lengst af hagstætt. Svalt var í veðri framan af, en um miðjan mánuð hlýnaði verulega og var hiti síðari hluta mánaðarins vel yfir meðallagi lengst af. Nokkuð hvasst varð víða um land um miðjan mánuð. Lengst af var fremur svalt og næturfrost viðloðandi í maí. Veður var óvenju þurrt og sólríkt um meginhluta landsins í maí. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist úrkoman aðeins 11 mm, hin minnsta í maí frá upphafi úrkomumælinga í Vestmannaeyjum 1881. Fádæma þurrt var einnig um suðaustanvert landið.
Júní var frekar hlýr og sólríkur um sunnanvert landið, en daufari nyrðra og eystra. Júlímánuður var nokkuð votviðrasamur, einkum framan af, en mikinn 10 daga góðviðriskafla gerði á Suður- og Vesturlandi síðari hluta mánaðarins. Ágúst var nærri meðallagi á suðvesturhorni landsins en blautur og frekar kaldur norðanlands. Óvenjusólarlítið var um norðanvert landið í ágúst. Septembermánuður var kaldur um allt land, hinn kaldasti frá 1982. Sólríkt var þá um sunnanvert landið.
Tíðarfar í október var fremur hráslagalegt og illviðrasamt. Úrkoma var mikil um norðanvert landið og víða óvenju mikill snjór miðað við árstíma. Snjór og hvassviðri ollu nokkrum samgöngutruflunum undir lok mánaðarins. Flóð varð á Höfn í Hornafirði um miðjan mánuð eftir metúrkomu á þeim slóðum.
Nóvember var nokkuð umhleypingasamur, sértaklega framan af. Fremur hlýtt var í desember, en veðurlag fremur órólegt. Óvenju hlýtt var á jóladag.
posted by Doddi |
11:27
miðvikudagur, desember 28, 2005
Búið ykkur undir mínútu með 61 sekúndu
Vísindamenn munu seinka upphafi ársins 2006 með hlaupsekúndu (e. leap second) sem var seinast gert fyrir sjö árum og er þörf vegna breytinga sem eiga sér stað á snúningi jarðar.
Þessi fínstilling er gerð með því að bæta sekúndu við árið í atómklukkum úti um allan heim á miðnætti á samræmdum alþjóðlegum tíma.
Fyrstu hlaupsekúndunni var bætt við 30. júní árið 1972 og er notuð til að halda tíma innan við 0,9 sekúndna frávik frá snúningstíma jarðar en margvíslegir þættir geta haft áhrif á hann, til dæmis þegar amerískar fituklessur bylta sér í sjónvarpssófum sínum.
Möguleiki er á neikvæðri hlaupsekúndu, þ.e. að það þurfi að draga sekúndu frá samræmdum alþjóðlegum tíma, en hingað til hafa allar hlaupsekúndur verið viðbót sem sýnir að jörðin er smám saman að hægja á sér.
posted by Doddi |
10:25
þriðjudagur, desember 27, 2005
Veitinga- og veisluþjónusta nördanna
Tilbúnir að taka við pöntunum.
Leggjum áherslu á gæði og ferskleika og notum aðeins ferskt og fjölbreytt hráefni. Bjóðum upp á spennandi og framandi rétti.
"Við erum tilbúnir að mæta þörfum ykkar"
ÞRIÐJUDAGUR
“Amöbur í metafasa meiósu, sjávarslepjusúpa og afgangsskata í hlandi.”
Fjölbreyttur salatbar (hundasúra), grænmygluð brauð með rjúkandi gróum
MIÐVIKUDAGUR
“Innmetisbollur”
með indverskum niðurgangi og basmati jónum.
Fjölbreyttur salatbar (fíflablöð), ilmandi grámygluð brauð, lyfjastyrkt og slævandi súpa