Reykingarfólk fer oft í pásu til þess að fá sér kaffi og sígó, ætli þau fari ekki svona að meðaltali fimm sinnum út að reykja á dag sem gæti kannski verið hálftími samanlagt. Eiga þau rétt á kaffitímum þess á milli eða ætti að taka það af þeim? Ætti kannski að umbuna þeim sem reykja ekki með öðrum hætti? Veit að þetta fer í taugarnar á einum sem vinnur með mér því annar starfsmaður sem reykir var að tuða yfir því að viðkomandi hafi verið of lengi í mat/kaffi.
Ætti viðkomandi kannski bara að byrja að reykja :-) ?
Það var bent mér á einn snilling á youtube sem sérhæfir sig í símahrekkjum sem kallar sig fonejacker. Mæli með að þið kíkið á efni eftir hann, annars er þessi hrekkur um DVD helvíti fyndinn og einnig þessi vitleysa