Allt er nú til. Ég var að hringja í einn kúnna Landsbankans og ég fæ símsvara sem segir : "Því miður getur þetta símanúmer ekki móttekið símtöl, vinsamlegast reynið aftur síðar." TIL HVERS AÐ HAFA SÍMA SEM GETUR EKKI MÓTTEKIÐ SÍMTÖL? Eiga menn að SMS hana? Og til hvers á maður að reyna aftur síðar ef síminn getur ekki móttekið símtöl?
Ég er að spá í að kaupa mér bíl sem ekki er hægt að keyra, hús sem ekki er hægt að búa í og tölvu sem ekki er hægt að kveikja á.
posted by Hrafnkell |
10:47
þriðjudagur, október 26, 2004
9 ára afmæli í gær!!!!
Jújú, það passar, níu ár síðan við Guðfinna kynntumst í Stúdentakjallaranum. Tíminn flýgur áfram........
posted by Hrafnkell |
13:32