Nördarnir
Enginn hreinn sveinn.... og einn giftur...
Nördarnir í action
Vinir Nördanna
Óvinur Nördanna
Nördabörn
Nördamyndir
Gestabok
Eldra rugl


föstudagur, apríl 15, 2005  

Brandari dagsins

Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð"?

Barþjónn: "Nei".

Önd: "Áttu brauð"?

Barþjónn: "Nei".

Önd: "Áttu brauð"?

Barþjónn: "Nei við erum ekki með neitt brauð".

Önd: "Áttu brauð"?

Barþjónn: "Nei, við erum ekki með neitt fjandans brauð hér"!

Önd: "Áttu brauð"?

Barþjónn: "NEI! Eru heyrnarlaus eða hvað!? Við erum ekki með neitt
djö****** brauð hér! Ef þú spyrð mig einu sinni enn þá negli ég helv***
gogginn á þér fastan við barborðið, óþolandi fáviti"!!

Önd: "Áttu nagla"?

Barþjónn: "Nei".

Önd: "Áttu brauð"?

posted by Hrafnkell | 15:26


þriðjudagur, apríl 12, 2005  

The Flasher

Það er komin ný mynd í bíó! Hún er frá framleiðendum myndarinnar Congo sem var sýnd fyrir einhverjum árum og þetta er sko engin smá ræma. Hún fjallar um sérsveit sem er í dimmum frumskógi og þarf að kljást við hættulegan perra, nefnilega flassara. En það sem er kannski merkilegast við myndina er að hann Hilmar leikur í henni (þetta er debut-ið hans). Ekki nóg með það.... hann fær að leika vonda kallinn.

Tékkið á soundtrailernum (best að nota heyrnatól)

posted by Doddi | 07:48