föstudagur, september 02, 2005
Óþol: Af hverju eru símar drasl í dag?
Einskis nýtt drasl þessir símar sem þeir selja nú til dags. Af hverju? SVO AÐ MAÐUR KAUPI FLEIRI SÍMA. Ótrúlegt þetta lið sem framleiðir þá, pískrandi saman í hljóði um hvernig símar eigi að endast lítið svo þeir selji sem mest af þeim. Ég er viss um að ef það yrði rannsakað kæmi í ljós eitt af mestu samráðsbrotum sögunnar.
Ég er með T-630 síma frá Sony-Ericsson. Skemmtilegt tæki, með mörgum og góðum fítusum. Ég fór með hann í Hreyfingu, því ég átti von á mikilvægu símtali. En smá sletta af vatni lenti á lyklaborðinu, og síminn fer ekki í gang aftur. Líklega orðið skammhlaup, sem lýsir því hvað þetta tæki er hryllilega illa einangrað. Það eru til margar leiðir til þess að verjast skammhlaupi, sú einfaldasta að notast við öryggi, en neeeiii þessir gróðafíklar geta ekki haft svoleiðis í símanum. Þetta er sjötti síminn sem skemmist hjá mér, ER ÞAÐ EÐLILEGT?
Svo fer maður með símana í viðgerð og fær svör á borð við: "Hmmm hann virðist hafa blotnað hjá þér síminn" (Ææ, ég hef víst skoðað sms í rigningu, þeir þola það víst ekki). Einu sinni sögðu þeir: "Við borgum þetta ekki, hann hefur greinilega dottið í gólfið hjá þér". Kjaftæði, það höfðu brotnað upp tengi sem eru svo fáránlega hönnuð að ég hafði aldrei séð annað eins, og ég hef séð MÖRG tengi í mínu starfi á rafmagnssviði. Það kæmi ekki á óvart að heyra þá segja einhvern tíman: "Nei því miður, þú hefur greinilega andað á hann, við borgum það ekki"
Það er einn sími sem hefur staðist tímans tönn. Það er Nokia 5110. Ég sé þá ennþá í notkun, og hvað er orðið langt síðan þeir komu á markað? Þeir hafa sennilega áttað sig á því að það voru mistök að hafa þá svona endingargóða. Þeir sem eiga 5110 hafa enga ástæðu til þess að kaupa sér nýjan síma, nema þá kannski til að fá einhverja fítusa. Staðreyndin er sú að það er EKKERT MÁL að smíða síma sem endast vel. En af hverju ættu þeir að gera það og minnka þörfina um leið? Eiginhagsmunaseggir segi ég bara! Skamm!
posted by Doddi |
02:09
fimmtudagur, september 01, 2005
Stjörnumerkin
hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Spurning hvort þið þetta lýsi ykkur vel eða ekki. Ég er steingeit og mér finnst sú lýsing endurspegla mig frá A-Ö :)
Hvað segið þið hin???
Hrútsmerkið er rolla, ég meina karlkyns rolla þ.e. hrútur. Rollulegheit er aftur á móti ekki að finna í eðli Hrútsins (sjá frekar fiskinn). Frekja er í eðli hrúta, ójá. Rollur segja Meeee. Hrútar segja Meeeeeessaðu EKKI í mér.. og þú ættir að sleppa því ! .. hornin geta meitt. Allir hrútar eru ýtnir og halda að þeir viti allt betur en aðrir og þeir ryðjast alltaf á undan í röð.. tramp tramp, skvamp og ýt ýt, komast áfram, vera fyrstir - jebb, það er best að koma sér bara úr veginum.
Hrútsmerkið stjórnast af Mars, sem er guð af "Ég vinn, þú tapar"-heimspekinni.
Nautið er karlkyns belja, ég meina þá auðvitað naut. Beljur gefa manni mjólk, naut gefa manni ósköp fátt nema kannski blakandi nasavængi og hvöss ég-rek-þau-í-gegnum-þig horn. Nautin taka það sem þau vilja, þegar þau vilja það - matinn þinn, uppáhaldsstólinn þinn, tíma þinn, orku þína, peningana þína, dótið þitt - þau eiga þetta allt og mega allt. Nautin fljóta í gegnum lífið og éta allt sem á vegi þeirra verður. Sjálfselsku ónytjungar!
Nautsmerkið stjórnast af Venus sem er gyðja dóts og fjármuna.
Tvíburarnir eru alltaf kleyfhuga geðsjúkl-ingar. Þeir geta ekki staðið kjurrir í eina mínútu og svo ljúga þeir stöðugt ! Fljóthuga, óákveðnir, flöktandi og algerlega gersamlega klikkaðir. Ekki umgangast tvíbura til lengdar nema þú viljir verða endilega geðveikur. Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hún elskar mig, hún elskar mig ekki. Þú munt aldrei vita rétta svarið.
Tvíburamerkið stjórnast af Merkúr, guði geðsjúkra hugarleikja.
Krabbamerkið er krabbi og það er ekkert flókið. Röfl, væl og kvartanir, endalaus fyrirtíðaspenna, hvort sem um er að ræða karlkrabba eða konudýr. Einstaka sinnum þegar tunglið er í réttri stöðu verður krabbinn öskrandi geðveikur. Það er eina hvíldin frá endalausu vælinu í honum. Ekkert er nógu gott, enginn hjálpar nógu mikið til, þú borðar ekki nógu vel, bla bla bla. Það er ekki hægt að þóknast þessu liði. Eina lausnin er að stinga þeim ofan í brennheitt vatn og sjóða þá í potti.
Krabbamerkið stjórnast af hinu spúkí tungli og hinum villtu, vanþakklátu sjávarföllum.
Ljón eru einfaldlega villidýr. Ljón spranga um eins og herrar og ungfrýr, fullkomin, alveg eins og heimiliskötturinn þinn. Ég meina, líttu á köttinn þinn - til hvers eru kettir eiginlega ? "Gefðu mér að borða. Sjáðu á mér hárið. Er ég ekki fullkomin ? Klappaðu mér, dáðstu að mér, leiktu við mig - farðu svo" - hvæs, klór. Þau leika ekki listir, gera ekki það sem þú segir þeim og þau fara úr hárum. Það er allt og sumt.
Ljónsmerkinu er stjórnað af sólinni, hr. Geisla sjálfum.
Meyjur eru ekki skemmtilegar. Þær eru hreinar og fölskvalausar og mjöööög smámunasamar. Ekkert og enginn er nógu góður fyrir Meyju. Þær stara á þig með borandi augnaráði og muna alla þína veikleika og galla. Þær þykjast vera vinir þínir og hjálpa þér en allan tímann eru þær flissandi og hlæjandi bakvið þig. Ekki treysta þeim í eina mínútu !
Meyjan stjórnast af Merkúr sem er guð ofurjafnvægis.
Fólk í voginni er alltaf allt úr jafnvægi. Þær reyna og reyna að gera hlutina rétt en þeim tekst það aldrei. Þær bæta smá öðru megin á vigtina, pínu hinum megin og aðeins í viðbót þangað til að þær eiga svo mikið af drasli að þær verða að halda bílskúrssölu eða leigja bás í Kolaportinu. En það gera þær auðvitað aldrei og þær vilja alltaf aðeins meira. Meiri ást, meiri skartgripi, meira gaman, meiri peninga, meiri fegurð, fleiri vini bla bla bla...
Vogin stjórnast af Venus - sem er gyðja fegurðar sem á fullt af frábæru dóti.
Sporðdrekamerkið er vondur, stingandi sporðdreki, eitrað meindýr, undirförult og hættulegt sníkjudýr myrkursins. ALDREI treysta sporðdreka. Sporðdrekar treysta þér ekki og þeir drepa þig án þess að hugsa sig um tvisvar. Ef þú ferð vel með þá gætu þeir hugsanlega orðið þokkaleg gæludýr - ef þeir eru í búri auðvitað. Sporðdrekinn læðist um allt óséður, kemst inn í hugsanir þínar og drauma og stelur þeim eins og þjófur um nótt. Ertu ekki hrædd(ur)?
Sporðdrekinn stjórnast af Plútó sem er guð kjarnorkusprengjunnar.
Bogmaðurinn er sjálfhverfur, trampandi og hneggjandi hestur. Forðaðu þér úr veginum... af því flest allir Bogmenn eru með augnskjól svo að þeir geta ekki horft til hliðanna og sjá ekkert yfir hvað þeir eru að koma sér í. Þeir segja líka alltaf nákvæmlega það versta sem hægt er að segja í stöðunni einsog; "hei-þú ert miklu ellilegri og feitari en síðast þegar ég sá þig" eða "hvað er þetta eiginlega þarna framan í þér?" Þetta er ekki hreinskilni, þetta er bara grimmd.
Bogmannsmerkinu er stjórnað af Júpiter, hinum upphaflega sá-sem-allt-veit-best !
Steingeitin er geit. Leiðinda frek steingeit. Svona geit sem lítur út fyrir að vera gömul og svikul. Þær hengslast upp fjallið jájá, með öllum þeim undirförlu og andstyggilegu trikkum sem þeim dettur í hug. Svo eru þær með uppkrulluð horn, alveg eins og djöfullinn sjálfur. Steingeitur nota og misnota þig á alla mögulega vegu til þess að fá sínu framgengt. Þeim er alveg sama þótt þær þurfi að éta sorp eða þótt það taki óralangan tíma, þeir skulu bara ná sínu fram.
Steingeitin stjórnast af Satúrnusi, hinni eilífu föðurímynd.
Vatnsberinn er villtur vatnastrákur eða stelpa. Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaust fólk. Þeir hafa einungis eina reglu; ef það er gott, þá gera þeir það. Vatnsberar eru alltaf með flókin og greindarleg plön í gangi sem þeir síðan hlaupa frá án þess að hugsa sig um tvisvar. Þeir segja þér eitt og láta síðan einhverja fáránlega hugmynd teyma þá alveg til Timbúktú. Ekki einu sinni láta þér detta í hug að reyna að fylgja Vatnsbera eftir, þetta er blautt, sleipt og geðveikt lið.
Vatnsberinn stjórnast af Úranus, guði eldinga, rafmagns og hjólreiðamanna.
Fiskamerkið ... hmm, fiskur ? Eða, eiginlega tveir fiskar að synda í gagnstæða átt- alltaf týndir. Fólk í fiskamerkinu lifir í stöðugum ótta vegna þess þeir vita að hættulegar fiskaætur leynast alls staðar ... fylgist bara með því hvernig þeir skjótast um, snarruglaðir og illa fyrirkallaðir. Fiskar geta ekki verið á beinu brautinni í tvær sekúndur og þú þarft ekki annað en að henda út gómsætri beitu þá eru Fiskarnir mættir á sekúntubroti, tilbúnir að bíta á agnið. Auðveldir þessir Fiskar nefnilega (eiginlega eins og rollur).
Fiskarnir stjórnast af Neptúnusi, guði friðar, ástar og ruglings.
posted by Hrafnkell |
16:33
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
Jæja.....
Ég og Doddi skelltum okkur á Fylki-Keflavík í gær til þess að fylgjast með íþróttanördinu í action. Það skemmdi ekki fyrir að Brimborg bauð öllum frítt á leikinn. Miðað við það bjóst maður við múgi og margmenni en það var nú ekki raunin, það er greinilegt að Árbæingar eru að gefast upp á því að mæta á leikina útaf slöku gengi undanfarið. Mér finnst það fáránlegt að standa ekki við bakið á sínu liði sama hvernig gengur, maður er ekki sannur stuðningsmaður annars.
Doddi drakk tvo bjóra á leiðinni á leikinn og drapst í hálfleik og rúllaði niður brekkuna. Það seinasta sem ég sá af honum var þar sem lukkudýr Fylkis var að draga hann inn í lítinn skúr á bakvið Fylkishúsið. Ég vil ekki vita hvað fór fram þar en það kæmi mér ekki á óvart þó Doddi labbaði frekar undarlega í dag.
Það var frekar pirrandi að horfa á þennan leik þar sem Fylkir óð í færum án þess að skora og svo fá Keflvíkingar eina sókn og setja mark!!!! HA þetta er bara fáránlegt HA GEÐVEIKT!!!!!! Íþróttanördið stóð sig samt vel í þessum leik og var gaman að sjá hann loksins í sinni gömlu stöðu í vörninni. Þá eru bara tveir leikir eftir af mótinu og Fylkir ekki ennþá sloppið við það að falla niður um deild!!!!
Svona til þess að skýra út stöðuna hef ég sett upp mismunandi scenario sem geta komið upp:
Fylkir tapar báðum leikjum, Fram vinnur ÍBV,Grindavík tapar fyrir Þrótt,Fram vinnur Grindavík og ÍBV vinnur Fram = Fylkir fellur Fylkir vinnur einn leik,Fram vinnur Þrótt,Grindavík vinnur Fram,Fram verður gjaldþrota,ÍBV tapar fyrir Liverpool = Fylkir fellur Fylkir dettur í það, Fram vinnur Grindavík, ÍBV verður veðurteppt út í eyjum, Liverpool tapar fyrir ÍA = Fylkir fellur Fylkir fer í meðferð, Fram tapar fyrir Grindavík,Liverpool verður evrópumeistari,Keli fær auglýsingasamning við Calvin Klein = Fylkir heldur sér uppi!!!
Þetta eru nú bara hugleiðingar um stöðuna og þetta á allt eftir að koma í ljós...
En það verða allir að mæta á völlinn í þessum tveimur leikjum og styðja FYLKI!!!!!!!
posted by Hilmar |
11:22
sunnudagur, ágúst 28, 2005
Mæta í ræktina sem var dæmdur fyrir að bóndann heyrðuð þið um? Eyðilagði kálfana hann.
posted by Doddi |
10:27