Ég segi nei. Ég nefni fimm ástæður, með meðfylgjandi rökum:
1. Hver á að kaupa kjötið?
- Það er óhugsandi að ríki sem banna hvalveiðar muni kaupa frá okkur hvalkjöt. - Norðmenn hafa mettað sinn innanlandsmarkað og munu því ekki kaupa frá okkur. - Færeyjingar sömuleiðis. - Japanir sömuleiðis. - Við þurfum að farga mörgum tonnum af hvalkjöti á ári hverju sem núna veiðist í vísindaveiðum, því innanlandsmarkaðurinn er mettaður. - Það er því ljóst að hvalur sem veiddur yrði í stórum stíl hér við land yrði annað hvort fargað eða seldur til þróunarlanda á niðursprengdu verði.
2. Þvert á móti því sem hvalveiðimenn segja, þá er ekkert sem bendir til þess að hvalur sé orsakavaldur þess að fiskistofnar séu að minnka hér við land.
- Stór hluti hvala hér við land eru átuhvalir, þ.e. þeir éta ekki fisk heldur svif. Svifi hefur ekki fækkað svo ég viti. - Tannhvalur, einmitt sá sem étur fisk, hefur aldrei verið veiddur hér að ráði. - Hvalir hafa lifað í sjónum í tugþúsundir ára og fiskistofnar hafa verið sterkir samhliða þeim. - Greinilegt er að hrun fiskistofna, svosem loðnu, er af mannavöldum, hvort sem það er vegna veiða eða loftslagsbreytinga. - Lundi og annar sjávarfugl étur meira af sandsílum og loðnu heldur en tannhvalir samanlagt. Á ekki bara að fækka þeim þá í staðinn?
3. Hvalir eru greind spendýr sem óæskilegt er að drepa með villimannslegum hætti.
- Rannsóknir benda til að hvalir hafi sjálfsvitund. - Þessar skepnur geta fundið fyrir miklum missi og sársauka sé náinn ættingi drepinn. - Hvalir halda fjölskyldur. Þetta er staðreynd sem allir ættu að þekkja sem einhverntíman hafa horft á dýralífsþætti. - Veiðiaðferðin er villimannsleg. Hvalur sem skotinn er með með skutli upplifir álíka sársauka og maður sem skotinn er og særður með sprengikúlu (hollowpoint). - Hvalir ráðast næstum aldrei á menn. Þeir eru þó hættulegir í návígi vegna stærðar sinnar, nokkuð sem þeir geta ekki að gert.
4. Hvalaskoðun er vaxandi atvinnugrein.
- Hún er friðsamleg, göfug, og meira sæmandi en dráp á hvölum. - Hvalveiðar og hvalaskoðun, móralslega séð, geta ekki átt samleið.
5. Hvalveiðar geta skaðað aðrar útflutningsgreinar vegna almenningsálits í útlöndum.
- Viljið þið að vörur okkar verði sniðgengnar vegna reiði sem mun orsakast af hugsanlegum hvalveiðum Íslendinga?
Nú eru í gangi viðræður um að taka eigi jafnvel upp hvalveiðar aftur. Aflífum þessa hugmynd strax í fæðingu! Segjum NEI!
posted by Doddi |
12:54
miðvikudagur, júní 21, 2006
Gaussian gun
Hér er meira nördakonfekt fyrir ykkur góðir gestir!
Jæja nú eru Reynir og Rósey komin út og styttist nú óðum í að Himminn fari út líka. Við skulum bara vona að R&R muni eftir að pikka hann upp á flugvellinum þegar að því kemur.
En að öðru. Mér finnst þessi síða okkar ekki hafa staðið undir nafni sínu upp á síðkastið, því allt of lítið af nördaefni hefur komið hér inn. Hér er tilraun til að bæta úr því. Kíkið á þetta fróðlega og skemmtilega myndband: