Nördarnir
Enginn hreinn sveinn.... og einn giftur...
Nördarnir í action
Vinir Nördanna
Óvinur Nördanna
Nördabörn
Nördamyndir
Gestabok
Eldra rugl


föstudagur, apríl 06, 2007  

Áramótaskipið

Ég ætlaði alltaf að setja myndir af áramótaskipinu á netið, en kom því aldrei í verk.

Vopnabúr:
4 öflugar loftvarnabyssur (tívolíbombur)
1 loftvarnamarghleypa (vítisterta)
1 Eldvarpa (njálsbrenna)
3 Risaeldflaugar (Stórar rakettur)
1 Stór eldflaug (kúluraketta)
20 Kamikaze flugvélar
6 15 mm fallbyssur (kúlublys)
30 Hríðskotabyssur (skriðdrekar og bunch af magic whips)

Því miður þá mistókst vídeóupptakan af bardaganum. Ég mæli ekki með að menn leiki þetta eftir... ég fékk algert shjokk þegar þetta fór af stað og ég rak alla bak við hús.

En hérna er sköpunarverkið nú loks til sýnis:


Krakkarnir skemmtu sér við að mála (enda var þetta að sjálfsögðu allt fyrir krakkana!!! Honest!)


Skipið komið úr höfn og tilbúið í orrustu


Sannkallaður ógnvaldur úthafana


Fallbyssur, flugskeyti, eldflaugar, flugvélar.....


Stjórnboxið. Hægt var að kveikja í þessu úr öruggri fjarlægð!



KABOOOOM!! Skot hæfði skotfærageymsluna svo hún sprakk í loft upp


Yfirgefið skipið!!


Þetta var hetjulegur bardagi


Flak

posted by Doddi | 15:47


þriðjudagur, apríl 03, 2007  

Bráðum koma....

raksápupáskar

posted by Doddi | 13:23